06.04.2010 22:11:12 / gofugtmarkmid
Trúarmál eru eitt það leiðinlegasta umræðuefni sem til er, já icesave er skemmtilegra. Trúarmál eru skrýtinn og leiðinleg og nánast óræðanleg. Ástæðan er einföld það eru nánast allir með sína skoðun og eru alls ekki tilbúnir að breyta henni hvað sem á dynur. Sá sem er trúaður mun aldrei samþykja það að trúarritið(biblían,kóraninn og fleiri) sé vitlaust og sá sem er trúlaus mun aldrei viðurkenna biblíuna. Síðan eru margir sammála og þá rökræða þeir en það er ekkert gaman að hlusta á menn rökræða sem eru sammála? Væri gaman að hlusta á rökræður um hvort væri betra að búa á Ísafirði eða Bolungarvík ef báðir aðilar væru Ísfirðingar? Held ekki. Hvort sem menn trúa eður ey finnst mér að menn mega gera það í friði svo lengi sem þér trufli ekki mig. Mér finnst sem dæmi trúleysingjar miklu leiðinlegri en íslenska þjóðkirkjan enda lætur hún mann nánast í friði. Mér finnst í lagi að börn eru skírð,fermd og læra faðirvorið og það er líka í lagi að sleppa þessum hlutum. Fólk verður að fá að trúa eins og það vill, ég sem dæmi er heittrúaður Arsenal maður og fólk verður líka að fá að trúa ekki. Bara látið mig í friði.
Ég held samt að Jesú Kristur Jósepsson hafi verið Micael Jackson síns tíma fór hratt uppá stjörnuhiminn en mun lifa um ókomna tíða.
Sigvaldi Bergur Bersteinsson
»
08.08.2009 03:36:02 / gofugtmarkmid
Fokk hvar í andkotanum er
ég! Þetta var mín fyrsta hugsun þegar ég var búinn að ná hausnum á mér uppúr
klósettinu. Þetta vat Gustavsberg kósett
afskapalega huggulegt búið að betrum bæta það með því að skipta út plastsetunni
fyrir trésetu. Það er afskaplega gott að æla í trésetuklósett það er svo gott
að hvíla hendurnar á svoleiðis setum. Þetta er alltaf jafn huggulegt að fatta
að maður er í ókunnu húsi þegar maður er búinn að skila syndum gærdagsinns í
klósettið. Miðað við bragðið í munninum þá fékk ég mér greinilaga brennivín og
sambuca sem skilaði mér á þetta ókunna klósett. Fyrir utan þetta gæða
gustavsberg klósett var þessi fína baðkar með sturtu og einhverskonar
baðinnrétting. Flísarnar voru
viðbjóðslegar einhvernvegin niðurgangasbrúnar og loftið ljósgrænt. Það var bara
einn tannbursti við vaskinn ásamt handasápu og kvennmannsnyrtidóti. Lyktin var
lakkrísblönduð kúmenslykt sem var náttúrulega bara í nösunum á mér. Ég tók
tankrem og reyndi að ná ælubragðinu úr munninum og fór síðan á klósetið til að
pissa. Mér til mikillar mæðu komst ég að því að smokkurinn var ennþá á þegar ég
byrjaði að skvetta úr honum. Ég reyndi að bjarga þessu en það fór piss út um
allt. Ég fann klósettpappír og þurkaði þetta upp.
Jæja nú er það komast að því
með hvað stelpu ég fór heim með. Ég fór fram og þetta var stúdíóíbúð bara
nokkuð stór um 40fm á að giska. Eldhúskrókur, eldhúsborð,sófi og síðan rúmið.
Ég sá glitta í lappirnar og tærnar voru ansi ljótar afskaplega klunnalegar
svona hálf þroskaheftar. Kálfarnir voru þéttir þannig að ég hef greinilega náð
mér í eina þétta sem er bara betra. Þrátt fyrir að hafa séð allt þetta þá man
ég takmarkað eftir gærkvöldinu. Það er eðlilegt að kannast ekki við manneskjuna
þegar maður sér tærnar, en það getur nú versnað úr þessu það er erfitt að toppa
ljótleikan á þessum tám. Nú er spurnig hvað maður á að gera skríða undir og
knúsa hana eða stinga af.
Eftir drykklanga stund ákvað ég að vera áfram. Ég ákvað að byrja að fikra mig uppundir
sængina þegar hún hrekkur við og snýr sér við og ég hendist niður á gólf. Ég
lenti á bakinu en meyðslin urðu ekki mikil þarna ligg ég og
hún horfandi niður á mig. Hún var nokkuð sæt dökkhærð með sætt bros. Mjög
púttuð í framan eins og líkaminn hennar var þannig að það er öruggt að ég fái
ekki móral yfir þessari. Hún brosir til
mín meðan ég ligg þarna og spyr ,,Fórum við heim saman?“ ég svaraði um hæl „Svo
virðist vera.“. Þá segir hún: „ Komdu þá
uppí og sinntu mér!“. Ég svaraði náttúrlega kallinu og fór og sinnti henni. Við
veltumst þarna og í miðju kófinu prumpar þessi elska og það kom þessi svaðalega
lykt. Ég náttúrlega nýbúinn að æla og
var enn smá flökurt. Leið og ég finn lyktina kúgast ég og missti allt uppúr
mér. Ég náði að fara til hliðar við hana en ég ældi samt yfir koddan hennar og
sængina. Hún trompaðist við mig og slóg mig í hausinn. Ég sprakk úr hlátri og
meðan hún reyndi að lemja mig tókst mér að koma mér í fötinn og koma mér út.
Þar tók nú ekkert betra við grenjandi rigning og ég bara í sparijakka. />
»
26.07.2009 02:47:19 / gofugtmarkmid
»
24.07.2009 02:13:25 / gofugtmarkmid
Sælt verið fólkið ég hef ekki skrifað lengi núna. Það er nú ekki vegna anna að ég skrifa ekki heldur meira vegna leti. Margt hefur drifið á daga mína síðan þá og ætla ég að setja þessi ævintýri fram í punktabloggi.
+Ég og Kata erum kominn með paríbúð á stúdentagörðunum íbúð 205 að mig minnir og byrjuð að leigja þótt flutningar verða ekki strax. Það verður crazy innflutnigsparty sem þér er kannski boðið í.
+Ég fór ásamt Kötu á þjóðlagahátið á Siglufirði sem var gargandi snilld og þar fórum við á ball með Hraun. Hraun er besta hljómsveit Íslands þeir spiluðu Lúdó og Stefán, Hemma gunn, Chicken Playback og jólalög sem var gaman.
+Ég á mér þjóðhátíðardag núna nánar tiltekið 18 júlí þegar Adebayor var seldur. Það er jákvætt en ég vona nú bara að Wenger noti peningana í annað en fermingargjafir.
+Þröstur er að verða pabbi sem er fyndið og ef hann eignast strák ætlar hann að skíra hann Kolbein Tinna sem er geðveikt töff.
+Ef ykkur vantar Wella hárfroðu fæst hún í öllum betri plötubúðum.
+Ef þú biður um einn Þröst í Nettó færðu heilan skrokk af nauti og 15 lítra af sósu með 150kg af kartöflum.
+Ég er byrjaður á skáldsögunni minni sem kemur vonandi út fyrir jólabókaflóðið 2087.
Ég ætla að enda þetta hugljúfa blogg á léttu nótunum.
KLESTAN FYRIR VESTAN!!!!
»
29.06.2009 05:02:11 / gofugtmarkmid
Jæja nú ætla ég að reyna að krota nokkur orð hérna niður. Eins og menn vita er ég hvers manns hugljúfi og vill öllum gott. Ég trúi á frið og vill að menn njóti náungarkærleiksins á þessum vondu tímum sem dynja yfir Ísland núna. Ég vil að fólk hætti að stríða hvoru öðru og sína í stað stríðninar væntumþykju og hlýju í garð hvors annars. Kvikindisskapur og stríðni eru líklegast síðustu orðin sem koma í hug ykkar þegar þið hugsið um mig hann Eyþór. Litli glókollurinn að vestan sem er alltaf brosandi og með eindæmum jákvæður og er aldrei með fordóma. Já það er ég kórdrengurinn sjálfur.

L for Love ; )
Jákvæður Bjarnason
»
26.06.2009 00:38:39 / gofugtmarkmid
A young couple just gave birth to their first child and the doctor
says, I've good some good news and some bad news, what do you want
first?
Give us the bad news first, the parents reply.
Your baby has red hair, says the doctor.
Well whats the good news ask the parents.
It's dead.
»
25.06.2009 03:36:26 / gofugtmarkmid
Eins og vanalega er ég með miklar pælingar um allt og ekkert. Ég hef verið að spá í það hvernig fólk tekst á við pirring og reiði. Sumar þurfa að kýla hluti, ráðast á einhvern, fara í fýlu, aðrir fá sér brauð með mysing, sumir reyna að ná heimsyfirráðum líkt og meistari Hitler og enn aðrir dansa líkt og Kevin Bacon til að ná reiðinni og pirringnum út. Ég sem dæmi þarf að fá að vera einn með sjálfum mér helst með tónlist til að ná svona hlutum úr mér og er ég yfirleitt ekki lengi að jafna mig. Ef ég fæ ekki að vera einn þá pirra ég alla líka í kringum mig viljandi sem hjálpar ekki neitt. Mig langar virkilega til að gera eins og meistari Kavin Bacon og dansa mig í gott skap. Það er samt svo erfitt ef maður er kannski útí banka og verður pirraður á maður þá bara að stilla ipodinn í botn og dansa? Maður spyr sig.

Kevin eitthvað pirraður á bílastæði.
»
16.06.2009 04:40:28 / gofugtmarkmid

Emmi eftir 30 ár

Þröstur í góður á því.

Stebbi breytist ekkert mikið í framtíðinni.

Atli! say no more. Svona veðrur atli greyið.

Steini heldur greinilega enn í vonina í framtíðinni að fá tóneyra.

Kata verður svona ávallt falleg.

Ég breytist ekki svo mikið sýnist mér
»
14.06.2009 01:26:32 / gofugtmarkmid
Vitið þið hvaða dagur er í dag? Það er Daloon dagur í dag.
Hvað er langt í hádegismat? Svona 3 metrar.
Hvert fara ljónin alltaf á djammið? Nú á Lion bar.
Hvað er þetta græna? Kallinn er að spræna.
Jæja nú er ég búinn að brjóta ísinn og allir ánægðir að fara lesa þetta yndislega blogg. Er það samt að ráðlegt að brjóta ísinn þegar maður hefur samræður? Maður stendur útá miðri frosinni tjörn með vinnum sínum að fara halda ræðu og til að létta öllum í lund þá myndi maður brjóta ísinn. Yrði þá ekki öllum frekar kalt að detta oní kalda tjörnina? Maður spyr sig.

Einhverja hluta vegna þá hugsa ég mikið um allt og ekkert og er mjög random í því. Ég fæ oft frábærar hugmyndir að mínu mati en fólki finnst þær oft ekki viðeigandi. Það eru fáir sem skilja mig en það eru einn og helst Jón og Þröstur held að Kata botni stundum ekkert í mér. Fólk er kannski að tala um skólann og eitthvað mjög mikilvægt og þá segi ég kannski vá hvað væri kúl að eiga Batman bílinn. Fólk horfir yfirleitt á mig með hornauga og spyr hvernig datt þér þetta í hug. Ég veit ekki hvernig mér dettur alla þessa hluti í hug og afhverju ég framkvæmi þá oftast. Ég á það til að fá frábærar hugmyndir þegar ég blóta bakkusi en þá segjir Þröstur stopp nú stýrimann og Kata líka en ekki Jón. Ég og Jón framkvæmum allt sem okkur dettur í hug og það má eiginlega ekki skilja okkur eftir eina með bakkusi það er ekki gáfulegt. Vá hvað mig langar samt í batman bílinn enda er ég batman og Þröstur(Robin á ensku) er Side Kickið mitt. Ég er allavegana ekki verri Batman en Micael Keaton(Douglas) það er ljóst.

Ég ógó kúl en Þröstur er alls ekki að gera sig á þessari mynd. Þröstur afhverju stuttermabolur og mótorhjólahanskar?
»
11.06.2009 21:53:57 / gofugtmarkmid
Hérna eru sumarlögin 2009 njótið vel.
1. Born in the USA- Bruce Springsteen.
2.Rauðilækur- Mammút.
3.Let Go- Dikta
4.Umbrella- Manic Street Preachers.
5.Sunday Morning- Árstíðir.
6.Atari- Ensími.
7.Baba O´Riley- The Who.
8.Lof mér að lifa- SSSól.
9.if you're into it- flight of the conchords.
10.It´s not over- Starsailor
11.Chicken Playback- The Bees.
12.Stand inside your love- Smashing Pumpkins.
13.Mile End- Pulp.
14.To be greatful- Trúbrot.
15.Seven Seas Of Rhye- Queen.
16.Nights In White Satins- The Moody Blues.
17.Rocking Chair- Oasis.
18.Golden Brown- The Stranglers.
19.Turn- Travis.
20.Child in Time- Deep Purple.
(Uppfært)
Vegna hversu óvenjulegt er lítið að gera ætla ég að bæta nokkrum orðum við hérna.
Af einhverri undarlegri ástæðu þá framkvæmi ég hlutina og hugsa síðan um afleiðingarnar. Eins og gefur að skilja þá brenni ég mig hoft á þessum vanhugsuðu aðgerðum mínum en oftast lukkast þær. Eins og ég sagði hér um árið er betra að taka 10 ákvarðanir og tvær þeirra vitlausar heldur en að taka enga ákvörðun. Undir áhirfum áfengis eru samt 9 af hverjum 10 rangar og snertir það yfirleitt kvennþjóðina. Samt sem áður hefur þessi fljótfærni mín skilað mér ansi miklu og skyndiákvarðinar mínar hafa yfirleitt reynst réttar(er að tala um edrú ákvarðanirnar). Ég ákvað á rólegu fimmtudagskveldi að flytja til DK, ég ákvað að flytja til AK í vinnunni, ákvað að flytja til RVK í sundi og ég spyr vanalega ekki um ráð bara geri hlutina. Ef ég hefði nú ekki byrjað með henni Kötu þá væri ég í Ástralíu núna án alls djóks. Ég var búinn að finna flug, nánast kominn með vinnu átti bara eftir að framkvæma vanhugsað plan mitt. Sem betur fer kom Kata til skjalana því ég hugsaði ekki út í það að það eru geðveikt stórar köngulær og eitraðir snákar í Ástralíu og hákarlar í sjónum. Ég er samt hamingjusamur maður í dag og ánægður með lífið og hef það bara gott. Ef ég hefði verið í Ástralíu núna væri ég pottþétt að segja þetta við sjálfan mig ,, Eyþór Bjarnason hvernig í andskotanum datt þér þetta í hug"! Síðan hefði ég dottið í það.
LET´S PUT ANOTHER SHRIMP ON THE BARBIE
»
14.05.2009 22:52:42 / gofugtmarkmid
»
07.05.2009 15:15:50 / gofugtmarkmid
Já ég á að vera að læra en ég get stolist til að blogga aðeins. Það er afskaplega leiðinleg að vera í prófum, ég hata próf þótt að mér gangi yfirleitt mjög vel í þeim.
Ég fór á The Boat That Rocked sem er besta mynd sem ég hef séð allavegana grínmynd. Þar fer Hoffmann á kostum sem hin snarklikkaði greifi. Mæli hiklaust með þessari mynd eigið eftir að orga úr hlátri. Ég hló svo mikið að ég tognaði í hnénu sem er afskaplega vont.
Sumarfríð mitt hefst á morgun klukkan 12:00 þegar ég labba útúr Íslandssöguprófinu vætanlega í vondu skapi. Sjálfsæðisbarátta íslendinga er e-ð það leiðinlegasta í mannkynssögunni. Það er enginn drepinn, enginn bylting ekki einu sinni slagsmál. Svakalega hallærislegt frelishetja okkar er Jón Sigurðsson sem gat talað og skrifað en ekkert töff gaur. Ég er samt á því að Adolf Hitler sé okkar frelsishetja! Ef hann hefði ekki farið í stríð þá hefðum við aldrei orðið rík. Þannig að lisarmaðurinn Hitler bjargaði okkur.
»
01.05.2009 20:50:45 / gofugtmarkmid
Sat hann með lokuð augun? Hvernig á ég að vita það.
Ég er búinn að fara í tvö próf núna í vikunni og gekk það eins og í sögu. Söguprófið gekk eins og í sögu og trúarheimsspekin já ég trúi ekki velgengi minni þar enn. Ég lærði nú ekkert myrkrana á milli las bara réttu bækurnar og fór vel yfir glósurnar. Já ég veit ekkert hvunar ég fer norður en það verður í mai. Síðan er ég að fara að spá í að fara að gefa út svokölluð heilræði Eyþórs. Þar ætla ég að festa á filmu ýmis heilræði eins og hvernig maður beitir tannburstanum rétt þegar maður burstar tennurnar, hvernig á að greiða sér, hvernig maður straujar föt og margt fleira. Ég hyggst gefa þetta út á internetinu, eru ekki allir spenntir fyrir því?
Nú sötra ég Martini sem er ekki gott en kúl og hlusta á ljúfa tóna í boði Sigur Rósar. Maður er orðinn svo mjúkur í sér, nei djók er að hlusta á snilldarsmellinn let go með Dikta.
»
24.04.2009 20:01:09 / gofugtmarkmid
Jæja góðan og blessaðan daginn kæru landsmenn. Ég held barasta að það sé kominn tími á blogg og þá meina ég ekki bara blogg heldur punktablogg.
- Prófin eru að byrja mér til mikillar mæðu, ég er alfarið á mói prófum. Afhverju? Þá kemst ég alltaf að því að ég hef ekki fylgst nógu vel með.
- Ég fjárfesti í grænni skyrtu um daginn sem allir virðast vera ástfangnir af. Ég verð fyrir áreiti þegar ég smelli mér í grænu þrumuna, ég er eins grískur guð í henni.
- Ég held að ég sé orðinn ásfangninn allavega svíf ég um á bleiku skýji þegar ég sé manneskjuna. Þvílíkur snillingur sem þessi manneskja er, vá guðdómleg. Það hefur enginn "glatt" mig svona mikið á einu kvöldi, fjögur skipti, sæll maður!!! var hálf aumur eftir þetta ævintýri(þið skiljið hvað ég meina). Ég er sjálfsögðu að tala um Arshavin hann nauðgaði liverpoll illla......
- Ég verð aftur í bílskúrnum í hamragerði í sumar. Núna verð ég bara með persónulegan þjón eins og Batman er með, hana Kötu. Þessi lína sem ég var að enda við að skrifa þýðir það að ég verð laminn í kvöld, sem er þess virði ; ). Nei en við munum búa þarna tvö í höllinni.
- Stærsti kosurinn við Hamragerðið er sá hversu gott það er að kúka í klósetið þar.
- Ég er að spá í að fara að læra en svona í lokinn þá hef ég bara eitt að segja: ARSHAVIN
»
21.04.2009 22:34:15 / gofugtmarkmid
»
Síður:
1 2 3 ...
7